33 - 997d4fe0-0a55-4b1a-bb36-e4303bc51777

Go back

1 Allt í lagi, ▶
2 hvert fórst þú síðast þegar þú varst að, þegar þú varst að ferðast innanlands? ▶
3 Hveragerði? Já, ▶
4 þú varst að taka þátt í íþróttaviðburði, ekki satt? ▶
5 Hveragerði? ▶
6 Hvort ég var. Jú, passar. ▶
7 Hengill, ekki satt? ▶
8 Hljóp þar fimmtíu og þrjá kílómetra. ▶
9 Já, það er, það er ógeðslega klikkað. ▶
10 Já, fimmtíu og þrír kílómetrar er mjög langt. ▶
11 Já, það er ▶
12 ég hef aldrei labbað það langt sko. ▶
13 Ekki ég heldur. ▶
14 Hérna, já, þetta var steypa. ▶
15 Mesta svona sem ég hef gert var að hjóla í Grindavík og til baka ▶
16 frá Keflavík, ▶
17 á bara hjólið sem ég átti þegar ég var í tíunda bekk. ▶
18 Það er langt. ▶
19 Já, ▶
20 og það líka var alveg mikið meiri vindur en við gerðum ráð fyrir af því að þetta var ég og ▶
21 og vinur minn sem var alveg jafn vitlaus og ég. ▶
22 Já. ▶
23 Við vorum bara með tösku með nesti og that's it sko, ▶
24 Já, það er, það hljómar eins og svona strákapara vitleysa. ▶
25 já, ▶
26 Reyndar átti hann kærustu í Vogum og hafði oft hjólað þangað ▶
27 þannig að hann var töluvert ▶
28 vanari þessu en ég. ▶
29 Já. ▶
30 En samt þetta var, þetta var algjör þvæla, náttúrlega. ▶
31 Hvernig heldur þú að heimurinn verði eftir hundrað ár? Já. ▶
32 Heimurinn verður eftir hundrað ár, ▶
33 bara heitari, aðallega ▶
34 eða þú veist ég veit það ekki maður. ▶
35 Þú ert, þú ert ekki á dómsdagsbuxunum? ▶
36 Nei, ▶
37 ekkert en nei, ▶
38 eða ég vona ekki þú veist ▶
39 er með svona svona. ▶
40 En jájá þú veist við, það verður eitthvað ▶
41 sem þarf að, sem þarf að eiga við ▶
42 varðandi þessa hluti og ▶
43 en þú veist ég held að við aðlögumst alveg sko. ▶
44 En já, það gæti orðið smá strembið þarna í tíma. ▶
45 Já, það gæti orðið það. ▶
46 En svona á meðan ▶
47 Golfstraumurinn fer ekki alveg í rugl ▶
48 þá ættum við að vera góð hér, svona nokkuð góð miðað við annars staðar. ▶
49 Það er ótrúlega fyndið. ▶
50 Nú tel ég mig ekkert heimskan mann en Golfstraumurinn er eitthvað sem ég veit bara hvað heitir. ▶
51 Nei, ▶
52 já, já, ég er mjög lítinn skilning á því. Sko, bara bara eitthvað sem að þú veist ég las í bók þegar ég var í áttunda bekk eða eitthvað. ▶
53 Þetta tengist eitthvað þarna Suður-Ameríku eitthvað. ▶
54 Segðu mér eitt því ég hef sterkar skoðanir á þessu. ▶
55 Hver er uppáhalds sundlaugin þín? ▶
56 Sko ▶
57 ég myndi segja ▶
58 æ ég veit það ekki við förum bara mest í Laugardagslaug, held ég, núna, ▶
59 en ég heyri að það sé klikkuð sundlaug í Keflavík núna, ▶
60 þar sem ég ólst upp en hef ekki farið þangað síðan síðan hún varð betri. ▶
61 En já, bara Laugardalslaug örugglega ▶
62 af því það er uppáhaldslaug sonar míns aðallega ▶
63 Mín er, hérna, Flosalaug í Svínafelli. ▶
64 Hvar er Svínafell? ▶
65 Heyrðu, það er rétt hjá þar sem ég fór í eitthvað, eitthvað ferðalag í tíunda bekk ▶
66 já, ▶
67 og hún er alveg hringlaga. ▶
68 já ▶
69 þannig að þú getur verið eins og eldislax ▶
70 Ég var nákvæmlega þannig. ▶
71 Nei, við sem sagt, það sem svo gaman var að því að þú nærð niður á botn þá gastu labbað bara í hringi ▶
72 og þegar allur hópurinn labbaði hringi þá myndaðist svona sog í miðjuna. ▶
73 Þú sást alveg þú veist, þú, hefðirðu verið í miðjunni þá hefðirðu getað snert bara botninn þurran sko. Já. ▶
74 það er klikkað, ▶
75 Síðan hættum við að að labba í hringi og þá fóru bara allir með straumnum sem hafði myndast í lauginni og síðan var náttúrulega líka alveg ógeðslega fallegt þarna í kring. ▶
76 já, ▶
77 já, það er svo mikið af góðum sundlaugum úti á landi. ▶
78 Já, enda er þetta líka, bær er ekki bær ef það er ekki sundlaug, sko. ▶
79 Já, það er rétt, ▶
80 það er til dæmis mjög góð sundlaug í Vestmannaeyjum. ▶
81 Ég hef ekki komið í hana. Ég þarf eiginlega að fara þangað. ▶
82 Það er rosalega gott system. ▶
83 Eða sem sagt kerfi sem að ▶
84 sem sagt, einn gæi sem ég þekki sem ég hitti ▶
85 á þjóðhátíð hann var með kærustunni sinni þarna. ▶
86 Þarna og ▶
87 þau voru alveg að drekka og allt en þau vöknuðu alltaf á morgnana og fóru beint í sund og komu síðan aftur. ▶
88 Þau voru alltaf ferskasta fólkið á svæðinu. ▶
89 Þetta er það sem maður gerði á Eistnaflugi, líka ▶
90 vaknaðir í ástandi, ▶
91 fórst í sund bara í sundlauginni í Neskaupstað ▶
92 og síðan labbaðirðu niður í Egilsbúð og fékst þér pítsu. ▶
93 Ógeðslega stóra pizzu. ▶
94 Já. ▶
95 Vá, ég væri til í að fara í Egilsbúð. Er hún ennþá til eða? ▶
96 Ég held það. ▶
97 Ég heyrði einhvern tímann að það væri eitthvað svona rekstrarerfiðleikar og ég eitthvað. Nei ▶
98 Það er nátturlega bara bara ástæða til þess að bara brenna á Neskaupstað, ekki það. Ég væri alveg til að vera á Neskaupstað á morgun. ▶
99 Þá vera bara, ▶
100 þeir spá að það gæti alveg farið upp í tuttugu og níu stiga hita. ▶
101 Já, já hvað er þá? Já, já það. ▶
102 Það er ▶
103 stundum gott, stundum ekki. ▶
104 Ég þarna ▶
105 á svo erfitt með hita stundum. ▶
106 Mér finnst eiginlega best þegar það er bara skýjað og þú veist tíu stiga hiti. ▶
107 Mér finnst það eiginlega langþægilegast bara ▶
108 Já, ▶
109 ég er svona eiginlega sammála þér, ▶
110 ég er þannig. Mér líður best á veturna, sko. ▶
111 Það fellur svo mikil ró yfir allt, ▶
112 Já, nákvæmlega, ▶
113 við fórum alltaf út í Varmaland ▶
114 þegar ég var úti í sveit þegar ég var lítill, var sendur út í sveit af því ▶
115 foreldrar mínir fengu nóg af mér ▶
116 og já, fórum alltaf út í Varmaland í sund þar. Þar er klikkuð sundlaug. ▶
117 Hún var klikkuð allavegana þegar ég var lítill. Hún er örugglega pínkulítil. ▶
118 já, ▶
119 en síðan er það málið, að það skiptir ekki máli hvort hún sé stór, ▶
120 Já, já, ▶
121 það er bara gaman. ▶
122 já ▶
123 nákvæmlega, ▶
124 Bara, það er gaman í sundi. ▶
125 já, já, ▶
126 Og hef aldrei kunnað að synda neitt vel. ▶
127 En það er ekkert það sem þú varst að gera þarna. ▶
128 Nei, ▶
129 maður þarf ekki að kunna að synda vel til þess að fara að kaffæra vinum sínum ▶
130 og pissa í laugina. ▶
131 Ég var einu sinni með vini mínum úti í sumarbústað. ▶
132 Þá fórum við í Hveragerðislaug held ég. Vorum í sumarbústað þar. ▶
133 Og hann hoppaði af svona ▶
134 svona bretti sem alveg skoppaði ▶
135 Já. ▶
136 og nema eitt skipti þá hoppaði hann ekki alveg nógu langt. ▶
137 og brettið, þú veist, ▶
138 mætti honum farandi í öfuga átt við hann í með hornið í rófubeinið á honum. ▶
139 Hann grét svo lengi og hann gat ekki hreyft sig sko. ▶
140 Þetta var svo sárt, allur líkamsþunginn hans fór beint á hornið ▶
141 með rófubeinið ▶
142 og rann síðan af því. ▶
143 Þetta er svo vont. ▶
144 Ég lenti í því einu sinni ▶
145 þegar ég var í skóla að ▶
146 þá héldum við eitthvað svona fótboltamót ▶
147 já, ▶
148 og ég ætlaði að gera eitthvað rosalega flott spark ▶
149 já, ▶
150 og ég hoppaði eitthvað upp í loftið ▶
151 með, ▶
152 ég sem sagt sparka með hægri fætinum og ég fer eins og svona næstum því karatespark sko, ▶
153 já, ▶
154 en ég lendi á vinstra hnénu með hælinn á rófubeininu mínu ▶
155 Ah! Já, ég hef gert svipað. ▶
156 og ég spilaði restina af af fótboltaleiknum látandi eins og það væri allt í lagi þegar það var bara ekki. ▶
157 Já, ég hef ▶
158 já ▶
159 lenti í svipað þegar það var sópað undan mér löppunum í júdó ▶
160 já, þá einhvern veginn settist ég á löppina á sjálfum mér og beyglaði mig allan. ▶
161 Ég var eins og ▶
162 eins og einhver garnflækja þarna á gólfinu. ▶
163 Fáránlegur. ▶
164 Hversu oft ferð þú út að hreyfa þig? ▶
165 Ekki mikið þessa dagana. ▶
166 Nei, ▶
167 Ég er að koma úr meiðslum ▶
168 en fyrir það ▶
169 þá fór ég á hverjum degi. ▶
170 já. ▶
171 Hengill ▶
172 aðeins að, aðeins að rugla í þér. ▶
173 Já, ég er ennþá að að borga fyrir hann. ▶
174 Já, ég reyni alltaf að fara fimm sinnum í viku í World Class. ▶
175 World rass, eins og ég kalla það. ▶
176 Þar sem ▶
177 svona ég er ekki alveg ▶
178 með straumnum í menningunni þar endilega en þú veist þetta er bara svo góð stöð og mikið af tækjum og mikið að gera að það er erfitt að, ▶
179 nenna að fara eitthvað annað þegar þú ert búinn að fara þangað. ▶
180 Já, ég meina, við fórum þarna saman ▶
181 Já, ▶
182 síðasta vetur. ▶
183 Já, þetta er reglulega flott stöð, sko. ▶
184 já, ▶
185 en þú veist, það er líka. ▶
186 En það er líka meira af svona rosalega ▶
187 í tísku liði þarna sko sem að ▶
188 mikið af förðuðum konum. ▶
189 En annars staðar ▶
190 Og mikið af svona nýjustu fötum, nýjustu hinu og þessu ▶
191 og hóptímarnir snúast ▶
192 mikið um hvernig rassinn á þér lítur út. ▶
193 Þetta er rosalega svona barn síns tíma á ákveðinn hátt ▶
194 að ég held, ▶
195 þú veist, þetta hlýtur að taka enda einhvern veginn ▶
196 Ég held að það komi bara bylgjur í þessu eins og bara í öllu öðru þegar kemur að bara útliti og tísku. ▶
197 já, ▶
198 Núna virðist vera í tísku að vera með stóran rass og og stórar mjaðmir og og ▶
199 ég veit það ekki, ég hérna ▶
200 Ég lít kannski ekki út fyrir það en ég hérna reyni að pæla mjög lítið í þessu. ▶
201 já, já, ▶
202 það er líka, sumar af þessum stelpum, þú veist maður, ▶
203 ég hugsa ég hugsa oft um það þegar ég sé eitthvað svona af því þú veist allur klæðnaðurinn einhvern veginn er hannaður til að þú horfir á rassinn á henni. ▶
204 Og þú veist það er svona smá bil þannig að þú sérð smá í magann eitthvað og, en þú veist það er, ▶
205 þetta er allt einhvern veginn teygjurnar og allt, þetta er allt þannig að þú standir alveg með rassinn úti ▶
206 og þú veist ég pæli oft þú veist ▶
207 ef maður myndi taka fötin í burtu, hvort hvort það væri eins mikið eins og hún væri með stóran rass eða ekki. ▶
208 Já, ▶
209 þetta, ▶
210 þetta er, þetta er skrýtin þróun. ▶
211 Já, þetta er skrítið ▶
212 og fáum þetta lánað frá svörtu fólki held ég ▶
213 sem að byrjuðu með tónlistarmyndbönd og svona. ▶
214 Ja, sennilega já, ▶
215 Þau virðast ▶
216 ákvarða mikið fyrir okkur ▶
217 hvað er cool og hvað ekki, ▶
218 sem er fine. ▶
219 já, ▶
220 ég er bara ekkert sérstaklega kúl ▶
221 Já, nei, ekki ég heldur. ▶
222 og hérna ▶
223 finn mig ekki einhvern veginn eins og ég þurfi að eltast við þetta. ▶
224 Ég reyndar er ▶
225 þannig blessaður að ég lít út eins og ég gæti alveg borið barn, sko. ▶
226 Með stóran rass, stórar mjaðmir, ▶
227 ég væri mikill fengur ef ég væri kona. ▶
228 En síðan, ▶
229 hinn hlutinn af því er að þjálfa lappir og rass og svona, þú veist, þetta er með þeim betri vöðva hópum sem þú getur svona ▶
230 miðað á þannig séð. ▶
231 Algerlega. ▶
232 Ég meina, þetta er skárra, finnst mér, heldur en en að taka bara efri líkamann. ▶
233 Já, eða þú veist ef að stelpu magavöðvar væru trendið, mér finnst þetta skárra en það líka. ▶
234 Þú getur ef þú fókuserar rosalega mikið þá geturðu meira að segja gert svona ▶
235 ójafnvægi í rauninni ▶
236 þannig að togar þig svolítið fram ▶
237 eins og eins og eins og þig langi meira til að beygja þig þegar þú ert með svona vöðva ▶
238 frekar en að ▶
239 að vera með góða bakvöðva líka á móti alveg hinum megin á mjóbakinu ▶
240 Já, þetta virðist mjög oft gleymast þegar fólk talar um þessa kjarnavöðva ▶
241 að halda að það séu bara magaæfingar. ▶
242 Þess vegna, ▶
243 þess vegna er ég mikill réttstöðumaður. ▶
244 Það bara, ▶
245 það gerir svo ógeðslega mikið. ▶
246 Já, ég hefði átt að gera meira af því fyrir ▶
247 Hengilinn. Meira af kjarnaæfingum, ▶
248 ég fann mikið fyrir því þegar ég kom í mark, bara hvernig mér leið í bakinu. ▶
249 Já, er það? ▶
250 Já, bakinu maganum, þú ert að hlaupa í alls konar ójöfnu þannig að þú ert með þessa kjarnavöðva spennta allan tímann ▶
251 já, ▶
252 og þú tekur ekki eftir því af því að þú ert að einbeita þér að því að hlaupa og og ▶
253 og passa upp á næringuna þína og vatnið og allt það. ▶
254 Þú tekur ekki eftir því að þú ert búinn að vera þú veist eins og ég, ég kláraði á, ▶
255 ja, næstum því tíu tímum, ▶
256 já, ▶
257 búinn að vera tíu tíma með spennta magavöðva. ▶
258 Maður verður svolítið þreyttur í bakinu á því. Já. ▶
259 Já, það er klikkað. ▶
260 Já, það er líka bara svona, ▶
261 svona æfingar gleymast oft þegar þú veist, ▶
262 fólk vill fá magavöðva og svona, alveg ▶
263 þú veist þá er bara eru þeir bara á gólfinu að sitja upp mikið. ▶
264 En, ▶
265 Já, ▶
266 og gleyma í rauninni svona aðal orrustunni, sko, ▶
267 til þess að búa til flotta magavöðva, hún náttúrulega gerist ekki í magaæfingunum, hún gerist í eldhúsinu, sko. ▶
268 já, einmitt ▶
269 einmitt svona, já, það er náttúrulega alltaf verið að gera grín að þessu ▶
270 en hér kemur ein góð. Hvað finnst þér best við að búa þar sem þú býrð? ▶
271 Já. ▶
272 Sem getur þýtt Sandgerði ▶
273 eða Ísland eða Reykjanes? ▶
274 Mér finnst, það sem mér finnst gott við að búa á Reykjanesinu ▶
275 er að það er einhver svona ákveðinn sjarmi yfir því hvað landslagið er kalt ▶
276 og miskunnarlaust. ▶
277 Já, ég, ég kannast við þetta. ▶
278 Það er svona, á veturna, það er bara, ▶
279 það er bara hraun hérna, rok ▶
280 og sjórinn allur úfinn. ▶
281 Já, ▶
282 Og það er skafrenningur. Og vertu bara inni. ▶
283 Já, við höfum farið með hundana í þessu veðri ▶
284 bara í kraftgöllum og ▶
285 þú veist alveg, það er ▶
286 náttúran þarna sýnir svo vel að það er hættulegt að fara eitthvað út fyrir slóðina og þetta er allt hættulegt bara. ▶
287 Já, þetta er svona, já, miskunnarlaust. ▶
288 Já, ▶
289 en síðan ógeðslega flott á sama tíma því að þú veist þegar er heiðskírt og skítkalt þá sérðu bara yfir til Reykjavíkur og Akraness og allt þetta og yfir á jökul. ▶
290 Já, ▶
291 Hvað er það, Snæfellsjökul? ▶
292 já, þú sérð náttúrulega Snæfellsjökul mjög vel héðan ▶
293 Já og bara ▶
294 og ▶
295 þetta er svo hrikalegt ▶
296 það er í rauninni bara besta lýsingin þótt við séum ekki með ▶
297 fjöll eða eða neitt þannig að neinu ráði, ▶
298 já, ▶
299 sérstaklega þegar þú ert á, þú veist, ▶
300 nálægt Reykjanesbæ og annað. Það eru engin fjöll hérna, þetta er bara flatlendi. ▶
301 já, já, ▶
302 Þetta er hrikalegt. ▶
303 Það er allt svo, ▶
304 gott dæmi. ▶
305 Ég var að hlaupa um daginn og ég hljóp út á Miðnesheiði ▶
306 í átt að Stafnesi ▶
307 og þar hljóp ég fram á ▶
308 refagreni. ▶
309 Og ég hugsaði það einmitt, uppi á miðri Miðnesheiði, sem er síðast þegar ég vissi mannskæðasta heiði á landinu, ▶
310 búa þessi grey ▶
311 og maður hugsaði bara: vá, hvað þetta þarf að vera hart af sér til þess að búa hér. Það er ekkert skjól. ▶
312 já, ▶
313 Það er ekkert skjól hérna, það er ekki. Það eru ekki tré, það eru engin fjöll, það er, ▶
314 engar háar byggingar, ekkert til þess að skýla þér frá ▶
315 rokinu og kuldanum og svona saltþurrkinum sem er hérna. ▶
316 já, nákvæmlega ▶
317 Ég elska það. ▶
318 Fyrir mig myndi ég segja bara, ▶
319 núna bý ég í Reykjavík en ég ólst upp í ▶
320 Keflavík, ▶
321 að svona ▶
322 eiginlega bara þjónustan hérna, sko, ▶
323 af því það er bara mikið þægilegra að fara á spítala hérna. ▶
324 Það er mikið þú veist ég er með tveggja ára strák núna, ▶
325 Já. ▶
326 þú veist, það er náttúrulega allt frítt og allt en líka þegar ég fer. Þá er alveg ljósmóðir og þegar þegar við vorum í því þá var ljósmóðirin ógeðslega góð og þú veist allt bara handan við hornið ▶
327 og þú veist ef að ég hringi á sjúkrabíl þá er hann töluvert fljótari að koma en hann myndi gera í Keflavík örugglega bara því Keflavík er að eiga við ▶
328 svo mikið mikið stærra svæði. ▶
329 Eftir því hvað er í gangi. ▶
330 Já bara, ég er ekki hrifinn af heilbrigðisstofnununum ▶
331 í Keflavík. Nei, bara enga góða reynslu af þeim. ▶
332 Ég hef eina. ▶
333 Já, ▶
334 Ég upplifði það að ▶
335 nú er konan mín ófrísk ▶
336 já, ▶
337 og að fara á mæðraverndina inn í Keflavík er eins og að vera kominn á annað sjúkrahús. ▶
338 já, ▶
339 já, ókei, ▶
340 Það er bara ekki það sama. ▶
341 Við komum þarna, ▶
342 vorum þarna eina nótt ▶
343 já, ▶
344 eða svona aðeins fram eftir nóttu ▶
345 og það var bara eins og ég segi, ▶
346 þetta var eins og vera á allt öðru sjúkrahúsi. ▶
347 Ég er ekki sá eini sem segir þessa sögu frá fólki fólk sem hefur farið þar í gegn líður ofsalega vel með það sko ▶
348 en ég ▶
349 ég til dæmis sæki heilbrigðisþjónustu annars staðar. ▶
350 Ég sæki hana inn í Reykjavík frekar heldur en hér. ▶
351 já, þetta ▶
352 þetta er bara ekki í lagi þarna sko, ▶
353 það er bara ekki nógu mikill peningur og ekki nógu góð þjónusta þarna sko. ▶
354 Já og síðan eru þeir að að að fara að byggja annað sjúkrahús þegar þeir geta ekki einu sinni viðhaldið því sem er hérna. ▶
355 Já, er það? Ég hafði ekki frétt af því. ▶
356 Það er alla vega það sem ég heyrði sko að það væri verið að byggja annað sjúkrahús hérna, stefnd, stefnt að því að byggja annað sjúkrahús hérna í staðinn fyrir að viðhalda því sem að er ▶
357 af því að það er, þetta er ekki lítið sjúkrahús. ▶
358 Nei, alls ekki. ▶
359 Það er bara sá kafli af því sem við förum inn á er bara já, ▶
360 í rauninni bara sýnishorn. ▶
361 Já, já, já, Keflavík, ▶
362 það er fullt af svona hlutum við Keflavík að, þú veist, mig langar ekki ▶
363 sérstaklega mikið að búa í Keflavík aftur. ▶
364 Nei, ekki ég heldur. ▶
365 Það má margt bæta þar. ▶
366 Ég náttúrlega bjó uppi í Ásbrú þar sem þú veist það er allt of dýr leiga þar fyrir hvað þú ert að fá og og bara ▶
367 það eru alls konar hlutir í gangi við Ásbrú, ▶
368 þú veist það eru einhver leigufélög búin að kaupa þetta allt upp í staðinn fyrir að ég veit ekki nota þetta undir námsmenn eins og þeir ætluðu að gera og ▶
369 alls konar svona kjánalegar ákvarðanir sem að maður skilur ekki alveg, ▶
370 eða þú veist maður skilur ekki alveg. Það er bara spilling örugglega eða eitthvað, einhver að græða á þessu. ▶
371 Þetta er, ▶
372 ég mun ekki flytja aftur þangað ▶
373 en aðrar ástæður fyrir því, ég bara, ▶
374 mér líður betur í í minni sveitarfélögum. Þegar ég elst upp í Keflavík, þá er Keflavík náttúrulega mikið mikið minni ▶
375 og allt svona ▶
376 mikið nær þér, maður gat farið og verslað hérna einhvers staðar og og aðilinn sem þú verslaðir við ▶
377 þekkti foreldra þína eða eitthvað, átti barn á þínum aldri eða eitthvað, og var allt saman svona mikið nær og vinalegra, sko. ▶
378 Já, ▶
379 síðan er ▶
380 síðan er eitthvað viðloðandi við Keflavík ennþá þar sem þar sem það er bara meira af ofbeldi þar á ▶
381 á djamminu en annars staðar ▶
382 sem að hékk bara eftir að við vorum alltaf að slást við ▶
383 Kanana sem að voru rétt hjá okkur eða eða hvað það var sko þetta, ▶
384 voðalega kjánaleg menningarþróun. ▶
385 Já, sem að ▶
386 mér finnst í sjálfu sér ekkert eiga neitt mikinn rétt á sér akkúrat núna. ▶
387 Að þetta orðspor því að þetta er bara einfaldlega ekki ▶
388 bærinn lengur. ▶
389 Já. ▶
390 Þetta er ▶
391 mikið meiri ró og og þetta er náttúrulega orðið eins og Reykjanesbær orðið annað stærsta sveitarfélag landsins ▶
392 sem segir okkur það að það er svona, ▶
393 hreinræktað fólk er í minnihluta núna, sko. ▶
394 Já, ▶
395 og það er bara svo stutt síðan þetta var í gangi líka að það, þetta er ennþá að hristast af eitthvað. ▶
396 já, já, ▶
397 Og síðan er náttúrulega gerist þetta endrum og eins og það kemst alltaf í fréttirnar þegar það gerist þannig að ▶
398 það heldur því við líka. ▶
399 já, ▶
400 En síðan er náttúrlega, eins og er að koma í ljós miðborg höfuðborgarinnar alveg langverst núna. ▶
401 já, ▶
402 Sá sýnishorn af því, ▶
403 Alltaf myndbönd líka sem fylgja, sem mér finnst svolítið skemmtilegt. ▶
404 já, ▶
405 Maður fær alltaf svona, ▶
406 smá svona þórðargleði ▶
407 þegar ▶
408 maður er að sjá einhvern láta illa og alveg láta einhvern valta yfir sig, ▶
409 já, ▶
410 sérstaklega ef það kemur smá saga með því, ▶
411 já, ▶
412 Hann getur lesið. Það er svo, það er svo gaman að, að fá svona skemmtilega sögu af nágranna sínum eða eitthvað. ▶
413 þú veist, einhver með þér í skóla fer í fangelsi eða eitthvað. ▶
414 Ég er að standa mig aðeins betur en þessi gæi. ▶
415 Já, þetta er, ▶
416 það eru einhver svona, já ▶
417 Ég held að við förum nú bara að kalla þetta gott ▶
418 svo við förum nú ekki yfir. ▶
419 ok. ▶
420 Bara vertu blessaður, góðar stundir. ▶
421 Góðar stundir. ▶
Go back